Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 16:25
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Espanyol fór langt með að tryggja sæti sitt
Felipe Caicedo
Felipe Caicedo
Mynd: Getty Images
Espanyol 1 - 0 Sevilla
1-0 Felipe Caicedo ('52 )

Espanyol fór langt með tryggja veru sína í efstu deild á næstu leiktíð þegar liðið fékk Sevilla í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Felipe Caicedo snemma í síðari hálfleik og þar við sat.

Espanyol er því fimm stigum frá fallsvæðinu þegar tveim umferðum er ólokið.

Sevilla er hinsvegar nánast búið að missa af Evrópusæti en liðið er enn með í Evrópudeildinni og gæti komist í Meistaradeildina með því að vinna Evrópudeildina þriðja árið í röð.
Athugasemdir
banner