Hljóðvarpsþátturinn Innkastið verður á dagskrá í kringum Pepsi-deildina í sumar en í þessu fyrsta Pepsi-Innkasti var farið yfir fyrstu umferð deildarinnar.
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tryggvi Guðmundsson skoðuðu leikina sex sem eru að baki.
Stjarnan vann Fylki, Fjölnir vann Val, Víkingur Ólafsvík vann Breiðablik, ÍBV rúllaði yfir ÍA, FH lagði Þrótt og þá var jafntefli í viðureign KR og Víkings.
ATH! Hlustaðu á Innkastið í gegnum Podcast þjónustu!
Athugasemdir