Erlingur Jack Guðmundsson, varnarmaður Þróttar, vill fá lægri verðmiða á sig í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita.
Erlingur kostar fjórar milljónir sem er ódýrasti verðmiðinn í deildinni.
„Finnst skandall að ég kosti 4M i draumaliðinu að ganga í 35 ára. Setjið mig á 3.5M og þá á ég séns á því að vera valinn í eitthvað lið!," sagði Erlingur á Twitter í kvöld.
Erlingur var ekki í leikmannahópi Þróttar í leiknum gegn FH í fyrstu umferðinni um síðustu helgi.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir