Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 06. maí 2016 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ranieri: 99% viss um að Mahrez verði áfram
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Riyad Mahrez greindi frá því í gær að hann teldi helmingslíkur á því að skjólstæðingur sinn yrði áfram hjá nýkrýndum Englandsmeisturum Leicester City.

Claudio Ranieri er á öðru máli og telur 99% líkur á því að Alsíringurinn flinki verði áfram hjá félaginu.

„Ég tel 99% líkur á því að hann verði áfram hjá félaginu," sagði Ranieri þegar hann var spurður út í ummæli Kamel Bengougam, umboðsmanns Mahrez.

Mahrez fær 35 þúsund pund í vikulaun hjá Leicester og er félagið að undirbúa nýjan samning sem myndi tvöfalda laun kantmannsins.

Félagið er einnig að undirbúa nýja samninga fyrir Danny Drinkwater og N'Golo Kante. Þá er óljóst hvort Wes Morgan og Danny Simpson fái samninga en þeir eiga báðir aðeins ár eftir af núverandi samningum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner