Haukar hafa fengið varnarmanninn Gunnar Gunnarsson í sínar raðir á láni frá Val.
Gunnar spilaði átta leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra og tíu leiki með liðinu árið 2014.
Gunnar spilaði átta leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra og tíu leiki með liðinu árið 2014.
Í yngri flokkunum var Gunnar í Stjörnunni og Víkingi R. en hann var einnig á mála hjá Hamri og Gróttu í 2. deildinni árið 2013.
Gunnar gæti spilað sinn fyrsta leik með Haukum í kvöld þegar liðið heimsækir Grindavík í fyrstu umferðinni í Inkasso-deildinni.
Haukum er spáð 8. sæti í Inkasso-deildinni í sumar en á dögunum missti liðið framherjann öfluga Björvin Stefánsson til Vals á láni.
Auk Gunnars þá hafa Haukar fengið kantmanninn Hauk Áserg Hilmarsson á láni frá Val að undanförnu.
Athugasemdir