Leiknir Fáskrúðsfirði hefur samið við spænska varnarmanninn Antonio Calzado.
Antonio er fimmti Spánverjinn í herbúðum Leiknis en hann spilaði síðast með Écija Balompié í spænsku C-deildinni.
Antonio er fimmti Spánverjinn í herbúðum Leiknis en hann spilaði síðast með Écija Balompié í spænsku C-deildinni.
Antonio kemur í stað danska varnarmannsins Jonas Westmark sem var sendur heim þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum.
Leiknir F. tapaði 3-2 gegn Selfossi í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar en liðið mætir Fjarðabyggð í grannaslag á morgun.
Ekki er ljóst hvort Antonio verði kominn með leikheimild fyrir þann leik eða ekki.
Athugasemdir