Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. maí 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Pako Ayestaran áfram með Valencia (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Pako Ayestaran hefur verið ráðinn þjálfari hjá spænska félaginu Valencia næstu tvö árin.

Ayestaran tók tímabundið við liðinu eftir að Gary Neville var rekinn í mars.

Valencia endaði í 12. sæti í La Liga á nýliðnu tímabili en hinn 53 ára gamli Ayestaran hefur fengið nýjan samning.

Ayestaran er 53 ára gamall en hann var aðstoðarmaður Rafa Benítez hjá Liverpool frá 2004 til 2007.

Ekki er ennþá ljóst hvort Phil Neville verði áfram aðstoðarþjálfari Valencia eða ekki.
Athugasemdir
banner
banner