Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. maí 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Wenger: Höfum fylgst lengi með Xhaka
Granit
Granit
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félagið hafi fylgst lengi með miðjumanninum Granit Xhaka.

Arsenal hefur keypt Xhaka í sínar raðir frá Gladbach á 35 milljónir punda.

„Granit Xhaka er spennandi, ungur leikmaður sem er með góða reynslu úr Meistaradeildinni og þýsku Bundesligunni. Við höfum fylgst lengi með honum og hann er leikmaður sem kemur með gæði í hópinn okkar," sagði Wenger.

Hinn 23 ára gamli Xhaka er sjálfur spenntur fyrir því að ganga í raðir Arsenal.

„Ég er mjög stoltur af því að ganga til liðs við Arsenal. Ég get ekki beðið eftir að flytja til London og spila fyrir þetta sérstaka félag í ensku úrvalsdeildinni."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner