Fréttir bárust af því fyrr í dag að Rafa Benítez hefði tekið ákvörðun um að halda áfram að stýra liði Newcastle United.
Þessar fréttir voru staðfestar af félaginu á heimasíðu þess nú í kvöld og kemur fram að Benítez hafi skrifað undir þriggja ára samning við Newcastle.
Benitez tók við liðinu í mars síðastliðinn en þessum reynslumikla Spánverja tókst ekki að halda Newcastle í úrvalsdeildinni og mun liðið því leika í Championship deildinni á næstu leiktíð.
„Ég er mjög ánægður að fá að halda áfram hjá Newcastle. Ég fann fyrir miklum stuðningi frá stuðningsmönnum félagsins og það hafði mikil áhrif á þessa ákvörðun mína," sagði Benítez þegar tilkynnt var um undirskriftina.
Benítez á langan þjálfaraferil að baki og hefur stýrt liðum á borð við Valencia, Napoli, Liverpool og Real Madrid.
Athugasemdir