Jón Stefán Jónsson, þjálfari KF, var brattur þrátt fyrir 9-0 tap á móti FH í Borgunarbikarnum í kvöld.
FH liðið var einfaldlega alltof sterkur andstæðingur eins og lokatölurnar gefa til kynna.
FH liðið var einfaldlega alltof sterkur andstæðingur eins og lokatölurnar gefa til kynna.
Lestu um leikinn: FH 9 - 0 KF
„Ég vissi að þetta yrði mjög erfitt en ég er ánægður með að Heimir skildi tefla fram svona sterku liði og sýna okkur þá virðingu. Þetta var mikil upplifun fyrir mína drengi að spila við toppaðstæður á móti flottu liði."
KF er enn á sigurs í 2. deildinni en Jón hefur ekki miklar áhyggjur, þrátt fyrir það.
„Ég er ekkert smeykur fyrir framhaldið, við erum búnir að spila erfiða útileiki og gera gott jafntefli við Magna á heimavelli."
Menn eru harðir á því fyrir norðan.
„Það verður rúntur heim á eftir, ætli það verði ekki 3-4 í nótt svo vinna klukkan 7-8."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir