fös 27. maí 2016 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Henry: Zlatan gæti reynst Man. Utd vel
Zlatan og Henry ræða hér saman
Zlatan og Henry ræða hér saman
Mynd: Getty Images
Thierry Henry, fyrrum framherji Arsenal og Barcelona, er á því máli að Zlatan Ibrahimovic myndi reynast Manchester United vel.

Svíinn sterki er að yfirgefa Paris Saint-Germain og hefur Manchester United verið nefnt helst til sögunnar sem næsti áfangastaður.

Henry vinnur nú sem sérfræðingur á Sky, en hann spilaði með Zlatan hjá Barcelona og telur að hann gæti haft mikil áhrif á enska boltann.

„Fyrir mér er þetta ekki spurning ef þeir geta fengið Ibrahimovic. Ég hef spilað með honum, hann er frábær gaur, algjör atvinnumaður og fyndinn," sagði Henry.

„Þegar hann fer út á völlinn þá er hann eins og dýr. Ég get ekki sagt neitt slæmt um hann og ég held að hann gæti reynst United og ensku úrvalsdeildinni vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner