„Þetta var góður leikur af okkar hálfu og verðskuldaður sigur. Það var sjokk að detta úr bikarnum en það var gott að þessi leikur kom snemma því þá hefur þú ekki tíma til að svekkja þig," sagði Indriði Sigurðsson eftir sigur KR á Val í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 2 - 1 Valur
„Við vissum fyrir leikinn að Valsmenn eiga erftt með að stjórna leikjum. Við ákváðum að vera þéttir og detta til baka. Þegar við náðum marki snemma þá passaði það ennþá betur."
Þónokkur hiti var í leiknum í Vesturbænum í kvöld.
„Það komust flestir heilir frá þessu. Það er stundum erfitt að vita hvar línan er hjá dómurum í deildinni. Það eru pústrar og erfiðar aðstæður sem koma upp og dómararnir eru að reyna að gera sitt besta."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir