fös 10. desember 2004 07:36
Hafliði Breiðfjörð
Hin hliðin - Ögmundur Rúnarsson
Það er Ögmundur Rúnarssson markvörður hjá Val sem sýnir á sér Hina hliðina í dag. Ögmundur sem er 27 ára gamall var varamarkvörður Vals í sumar en mun væntanlega eiga mjög erfitt með að vinna sér sæti í liðinu á næstu leiktíð enda félagið með fjóra öfluga markverði í heildina. Hann er hinsvegar alinn upp hjá Val en hafði verið í sjö ár hjá Víkingum er hann gekk í raðir Vals í sumar.

Hjá Víkingum lék hann alla leiki liðsins í 1. deildinni í fyrrasumar en missti svo sæti sitt er félagið fékk til sín erlendan markvörð. Ögmundur var hetja Vals í úrslitaleiknum innanhúss í síðasta mánuði er hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri.

Fullt nafn: Ögmundur Viðar Rúnarsson

Gælunafn Ömmi

Aldur: 27 stikki

Giftur / sambúð? Sambúð
Börn: Einn myndarlegan, Úlfur Ögmunds.

Hvað eldaðir þú síðast? Pezzu “le´Ömmi”

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepp og svepp

Hvernig gemsa áttu? Nokia e-ð

Uppáhaldssjónvarpsefni? CSI

Besta bíómyndin? “Best shot”

Hvaða tónlist hlustar þú á? Det hele

Uppáhaldsútvarpsstöð: Rás 2 en tvíhöfðinn kemur sterkur inn, alltof mikið af eitur hressum gaurum í þessum bransa.

Uppáhaldsdrykkur Jha ætli það sé ekki kók

Uppáhalds vefsíða fotbolti.net

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Jamm jamm jamm, nei segi ekki frá, en ég veit að Kristján Baldursson (Danni) er með furðulega hjátrú þarf alltaf að lykta að nærbuxunum sínum fyrir leiki, furðulegur andskoti.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Láta góð skot líta ílla út.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Jah engu

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Harald Toni Schumacher, Karl Heinz Rumminigge, Jurgen Kholer, Mattias Sammer

Erfiðasti andstæðingur? Reiturinn sem ég hef verið í upp á síðkastið hefur verið andskoti krefjandi Óli Inga (sorry með klobban), Gummi Ben (annar bónusbræðranna), Kiddi Lár (hinn bónusbróðirinn), Bjössi Hreiðas (náum 40 sendingum næst, varstu orðinn þreyttur?) og Baldvin “Bjútí” (það er ekki nóg að vera með lúkkið),. Hef reyndar ekki enn farið inní en þetta er mjög krefjandi reitur.

Ekki erfiðasti andstæðingur? Árni Ingi Pétursson, hef æft með honum samtals c.a. 3-4 ár og hann hefur ekki enn skorað hjá kallinum hvorki í leik né á æfingu.

Besti samherjinn? Ekki spurning Höddi Te, þeir sem hafa lent í soginu vita um hvað ég er að tala. Sterkasti vinstri bakvörður sem ég hef spilað með.

Sætasti sigurinn? Ég skal stikkla á stóru: Fyrsta medalían í 6 flokki.

Mestu vonbrigði? Að spila lítið sem ekkert síðasta tímabil.

Uppáhaldslið í enska boltanum? Man Utd

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Oliver Khan, Effenberg og Gunnar Sveinn Magnússon

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ásgeir Sigurvinnsson

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Kolbeinn Sigþórsson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Það hljóta að vera “Húsa-víkur Baldvinn” og “Hr. Ísland” sem berjast um þann titil.

Fallegasta knattspyrnukonan? Danníel Hjaltason víking

Grófasti leikmaður deildarinnar? Við erum með einn góðan kandidat í það í Val “Matti sækó” eins og við köllum hann.

Besti íþróttafréttamaðurinn? Valtýr Björn, ekki spurning, ég tók mig einu sinni til og ætlaði að hlusta á lýsingu í útvarpinu þar sem að skonrokk var að lýsa e-m leik og þar var Valtýr að lýsa hvaða áhorfendur voru á leiknum og hvað þjálfararnir voru að bralla á hliðarlínunni, honum tókst að blaðra um þetta í 35 min án þess að minnast á hvað staðan var né nefna einn leikmann sem var að spila og hugsanlega gat verið með boltan, en öðru hverju kom gríðarlegt öskur “oooooog þetta var færi maður, vá maður óli jó er alveg brjálaður” þá gafst ég upp á því að hlusta á leikinn án þess að vita hvað staðan var og við hverja FH var að spila. Það eru fáir sem gætu gert betur.

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? bíddu var ég ekki….æ já hann er bestur. Annars er þessi þarna “Gunni” og Felix á skjá einum, shit hvernig komst hann inn í þetta.

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Það var einn striker hjá okkur að komast á markaðinn sem ég gæti trúað að kæmi sterkur inn.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar Luka Kostic var að þjálfa mig í Víking þá man ég að fyrir einn leik í deildinni var hann að halda netta pepp ræðu og mismælti sig eitthvað og var að tala um að við ættum að spila “agalegan leik” en flestir áttuðu sig á því að hann var að meina þ.e. spila “agaðan leik”. Síðan þegar við erum að ganga út á völlinn spyr Haukur Úlfars okkur “ ég skil ekki alveg vill hann að við spilum ílla í byrjun?” Sem betur fer tókst okkur að leiðrétta þann misskilning hjá Hauk áður en leikurinn hófst.

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? nei

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Spilaði nokkrar min. 1996 í einhverju Rvk mót/deildabikar

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Fín síða

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Það kemur fyrir

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ekkert sem mig dettur í hug

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Sex Pistols

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Langhlaup

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Laufar Sigurður Ómarsson ekki spurning.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Þessi spurning er alveg út í hött, en jæja ööö æ sleppi þessari.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Mjög lengi, fyrstu setningarnar fara svona að myndast um tvöleitið.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Ekki spurning, Kjartan Guðmundsson.

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Nei voðalega lítið!!

Hver er uppáhalds platan þín? Definitely Maybe

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Man ekki

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? já
Slapp
banner