Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2016 17:52
Þorsteinn Haukur Harðarson
Mourinho: Zlatan einn sá besti í heimi
Mynd: ManUtd.com
Jose Mourinho, þjálfari Manchester United, var afar ánægður þegar enska félagið tilkynnti að Zlatan Ibrahimovic væri orðinn leikmaður liðsins.

"Það þarf vart að kynna Zlatan. Tölfræðin segir allt sem segja þarf enda er hann einn besti leikmaður heimsins,"

"Hann hefur unnið margar af stærstu deildarkeppnum heimsins og nú er hann kominn í bestu deild í heimi. Ég veit að hann mun gera allt til að nýta tækifærið og hjálpa okkur að vinna titla. Ég er viss um að hæfileikar hans munu gleðja stupningsmenn liðsins."
Athugasemdir
banner
banner
banner