Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. júlí 2016 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-deildin: Alexander bjargaði Grindavík - Huginn náði í stig
Fjarðabyggð og Grindavík áttust við í dag
Fjarðabyggð og Grindavík áttust við í dag
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Tveimur leikjum var að ljúka 1. deild karla, Inkasso-deildinni, en nokkuð óvænt úrslit áttu sér stað.

Fjarðabyggð, sem var við botn deildarinnar, mætti Grindavík, en lið Grindavíkur hafði ekki unnið leik í mánuð fyrir leikinn í dag.

Því var það kannski endilega óvænt að sú ganga skyldi halda áfram, en leikurinn í dag endaði með jafntefli.

Jose Alberto Djalo Embalo kom Fjarðabyggð yfir með marki úr aukaspyrnu og Víkingur Pálmason tvöfaldaði forystuna á 34. mínútu.

Alexander Veigar Þórarinsson minnkaði muninn fyrir Grindavík undir lok fyrri hálfleiks og hann náði svo að jafna í uppbótartíma. Lokatölur því 2-2 í þessum leik.

Grindavík byrjaði tímabilið af miklum krafti, en gengi liðsins hefur eins og áður segir dalað mikið undanfarið. Grindavík er með 14 stig í 3. sæti á meðan Fjarðabyggð er í 10. sæti með sjö stig.

Einn leikur fór fram á sama tíma, en þar var minna um að vera. Nágrannar Grindavíkur í Keflavík gerðu markalaust jafntefli við Hugin.

Vonbrigðarúrslit fyrir Keflavík, en liðið er nú með 11 stig í 6. sæti. Huginn er með fjögur stig í botnsæti deildarinnar.

Fjarðabyggð 2 - 2 Grindavík
1-0 Jose Alberto Djalo Embalo ('10)
2-0 Víkingur Pálmason ('34)
2-1 Alexander Veigar Þórarinsson ('40)
2-2 Alexander Veigar Þórarinsson (´92 )
Lestu nánar um leikinn

Keflavík 0 - 0 Huginn
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner