Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 21:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mörg stórlið á eftir Manolas
Kostas Manolas er eftirsóttur.
Kostas Manolas er eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Manchester United, Manchester City og Chelsea hafa öll áhuga á að fá Kostas Manolas, leikmann Roma en þetta segir umboðsmaður leikmannsins.

Manolas kom til Roma fyrir tveim árum síðan frá Olympiacos og hefur hann spilað virkilega vel á þeim tveim árum sem hann hefur verið á Ítalíu.

Manolas er 25 ára en hann hefur verið í viðræðum við Roma yfir nýjum samning en hann er ekki búinn að skrifa undir neitt ennþá.

Sky Sports greindi frá því í apríl að Chelsea hefði áhuga á Manolas en nú virðast þeir hafa fengið samkeppni frá hinum risum úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner