Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 24. júlí 2016 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ranieri: Mahrez gæti endað á bekknum
Riyad Mahrez
Riyad Mahrez
Mynd: Getty Images
Claudio Ranieri, þjálfari Leicester, segir Riyad Mahrez geta endað á bekknum ef hann ákvaður að yfirgefa Englandsmeistarana.

Mahrez er búinn að vera orðaður frá Leiciester í nokkurn tíma núna og þykir Arsenal vera líklegur áfangastaður hjá vængmanninum.

Hann spilaði sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu í gær og var Ranieri ánægður með sinn mann en hann skoraði í leiknum sem var gegn Celtic.

„Hann vinnur vel fyrir liðið, skoraði mark og verður vonandi áfram. Það er mjög mikilvægt að við höldum honum, hann er einn besti leikmaðurinn okkar."

„Auðvitað eru önnur lið sem hafa áhuga á honum en hann verður að passa sig. Ef hann fer í stórlið, gæti hann endað á bekknum," sagði Ranieri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner