Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var ánægður með margt í leik sinna manna, þrátt fyrir 1-0 tap gegn Víkingum í kvöld.
Hann segir ekki marg hafa vantað upp á hjá sínum mönnum í kvöld.
Hann segir ekki marg hafa vantað upp á hjá sínum mönnum í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 KR
„Það var ekki margt, við settum þá undir mikla pressu í fyrri hálfleik. Við stjórnuðum leiknum mjög vel."
Vladimir Tufegdzic skoraði eina mark leiksins með skoti utan teigs og hefði Stefán Logi Magnússon átt að gera betur þar sem boltinn virtist fara í gegnum hann. Willum segir að Stefán sé eflaust ósáttur við markið.
„Ef þú myndir spurja hann, þá er hann það góður markmaður að hann myndi segja já."
Mikið hefur verið rætt og ritað um Hólmber Aron Friðjónsson, framherja liðsins en Willum segist lítið vita hvort hann verði áfram eða ekki en hann veit af áhuga annarra liða.
„Ekki hugmynd, ég veit það eru margir sem hafa áhuga. Hann er hjá KR, hann kom inná í dag og ef það væri í myndinni að selja hann, hefði hann væntanlega ekki spilað leikinn."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir