Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. júlí 2016 09:20
Magnús Már Einarsson
Leicester með tilboð í kantmann
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Leicester hafa boðið 5,25 milljónir punda í pólska kantmanninn Bartosz Kapustka.

Kapustka er einungis 19 ára gamall en hann er á mála hjá Cracovia í heimalandinu.

Kapustka vakti athygli á EM í Frakklandi í sigri Pólverja á Norður-Írum.

Leicester hefur nú boðið í leikmanninn en félagið á eftir að fá samkeppni um Kapustka því félög í Englandi, Þýskalandi, Spáni og Hollandi hafa einnig áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner