Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. júlí 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Jón Daði á óskalista QPR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
QPR vill fá Jón Daða Böðvarsson, framherja Kaiserslautern í sínar raðir samkvæmt frétt Westlondonsport.com.

Hinn 23 ára gamli Jón Daði gekk til liðs við Kaiserslautern um áramótin

Góð frammistaða Jóns Daða á EM vakti athygli QPR.

QPR hefur verið í leit að framherja í sumar en Sehrou Guirassy var á ósklalista félagsins. Köln hefur hins vegar keypt Guirassy frá Lille.

Jón Daði er því efstur á óskalistanum í dag samkvæmt frétt WestLondon.

QPR er einnig að reyna að fá Alex Prichard, kantmann Tottenham, í sínar raðir.
Athugasemdir
banner