Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 27. júlí 2016 06:00
Elvar Geir Magnússon
Jón Guðni kinnbeinsbrotinn
Jón Guðni er til vinstri á myndinni.
Jón Guðni er til vinstri á myndinni.
Mynd: Getty Images
Íslenski varnarmaðurinn Jón Guðni Fjóluson spilar ekki næsta mánuðinn að minnsta kosti vegna kinnbeinsbrots. Þetta var opinberað í gær.

Lið hans, Norrköping, er ríkjandi meistari í Svíþjóð og er í harðri baráttu um að verja titilinn. Liðið er stigi á eftir toppliði Malmö þegar 15 umferðum er lokið.

Jens Gustafsson, þjálfari Norrköping, segir það áfall að missa Jón Guðna út enda hefur hann spilað alla deildarleiki tímabilsins fyrir utan þann síðasta. Hann meiddist á æfingu fyrir þann leik.

Jón Guðni er fyrrum leikmaður Fram en hann kom til Norrköping frá Sundsvall síðasta vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner