Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. júlí 2016 07:00
Magnús Már Einarsson
Gastones sigraði 12. umferð í Draumaliðsdeild Eyjabita
Gestur Valur Svansson ánægður með harðfiskinn.
Gestur Valur Svansson ánægður með harðfiskinn.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Gestur Valur Svansson var stigahæstur í 12. umferð í Draumaliðsdeild Eyjabita með lið sitt Gastones.

Árni Vilhjálmsson og Ármann Smári Björnsson skiluðu mest af stigum fyrir Gest en sá fyrrnefndi var fyrirliði hjá honum.

Gestur fékk harðfisk frá Eyjabita í verðlaun fyrir að vinna umferð 12!

Notaðu wildcardið
Næsta umferð Draumaliðsdeild Eyjabita er á miðvikudaginn og því gefst þátttakendum góður tími til að skoða lið sín fyrir síðari umferðina.

Einu sinni á sumri er hægt að nota "wildcard" og margir vilja eflaust skoða breytingar á liði sínu nú þegar mótið er rúmlega hálfnað.

Wildcard gerir þér kleift að gera ótakmarkaðar ókeypis skiptingar í einni umferð. Þú færð eitt Wildcard yfir tímabilið. Þegar þú leikur þínu Wildcard þá strokast út mínusstigin sem þú hefðir fengið fyrir svo margar skiptingar.

Smelltu hér til að fara í leikinn
Athugasemdir
banner
banner