KR hefur samþykkt tilboð frá Stjörnunni í framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.
Hólmbert hefur verið orðaður við brottför frá KR í félagaskiptaglugganum en hann á nú sjálfur eftir að ganga frá samningi við Stjörnuna eftir að tilboðið var samþykkt.
Hólmbert kom til KR frá Celtic fyrir einu ári síðan. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í sumar og ekki náð að skora mark í Pepsi-deildinni.
KR keypti framherjann Jeppe Hansen frá Stjörnunni á dögunum og nú er Hólmbert á leiðinni í hina áttina.
Hólmbert mun berjast við Guðjón Baldvinsson um stöðu í framlínunni hjá Stjörnunni.
Sjá einnig:
Hólmbert: Þetta hefur tekið helvíti mikið á mig
Athugasemdir