Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2016 13:34
Magnús Már Einarsson
Denis Kramar í Víking Ó. (Staðfest)
Mynd: Víkingur Ó.
Víkingur Ólafsvík hefur samið við miðvörðinn Denis Kramar en hann mun leika með liðinu út tímabilið.

Denis er 24 ára gamall en hann kemur frá Slóveníu.

Síðast spilaði Denis fyrir FK Sarajevo en þar áður spilaði hann fyrir Perth Glory í Ástralíu og með varaliði Getafe í spænsku C-deildinni.

„Denis kemur til með að styrkja vörnina fyrir komandi átök í seinni hluta Pepsi deildarinnar," segir á heimasíðu Víkings.

Víkingur er í 7. sæti Pepsi-deildarinar en liðið hefur aðeins sigið niður töfluna að undanförnu eftir frábæra byrjun í sumar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner