banner
   fim 28. júlí 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Man City lagði Dortmund í vítaspyrnukeppni
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Manchester City 1 - 1 Borussia Dortmund (7-6 eftir vító)
1-0 Sergio Aguero ('80)
1-1 Christian Pulisi ('90+4)

Manchester City sigraði Borussia Dortmund 7-6 eftir vítaspyrnukeppni í vináttuleik í Kína í dag.

Sergio Aguero kom City yfir eftir undirbúning David Silva þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Christian Pulisi jafnaði hins vegar seint í viðbótartímanum og því var farið í vítaspyrnukeppni.

Þar varði hinn tvítugi Angus Gunn þrjár spyrnur frá Dortmund og tryggði Manchester City sigurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner