banner
   fim 28. júlí 2016 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Notendur rifu Chelsea í sig á Twitter
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas átti fáránlega tæklingu í æfingaleik í nótt þar sem Chelsea lagði Liverpool að velli með einu marki gegn engu.

Fabregas fékk beint rautt spjald fyrir tæklinguna og fór í búningsklefa Liverpool eftir leik til að afsaka sig.

Twitter aðgangur Chelsea birti tíst á meðan leikurinn var í gangi sem vakti reiði notenda sem rifu klúbbinn gjörsamlega í sig í kjölfarið.

„Cesc Fabregas fær rautt spjald fyrir að brjóta á Ragnar Klavan. Hann var seinn í boltann en rautt spjald virðist svolítið harkalegur dómur," birti félagið á Twitter og uppskar mikið af skemmtilegum svörum sem er hægt að sjá hér fyrir neðan myndbandið af brotinu.














Athugasemdir
banner
banner
banner