Gabriel Jesus var rétt í þessu að staðfesta komu sína til Manchester City í viðtali við FOX í Brasilíu.
Jesus er 19 ára gamall framherji sem er talinn vera efnilegasti brasilíski sóknarmaður síðan Neymar braust á sjónarsviðið fyrir þremur árum.
Jesus er 19 ára gamall framherji sem er talinn vera efnilegasti brasilíski sóknarmaður síðan Neymar braust á sjónarsviðið fyrir þremur árum.
Jesus hefur verið að skora í öðrum hverjum leik fyrir Palmeiras í brasilísku deildinni og er búinn að gera átta mörk í tíu landsleikjum með U23 og U20 liði Brasilíu.
Man City er talið þurfa að greiða 20 milljónir punda fyrir leikmanninn en félög á borð við Real Madrid og PSG hafa einnig sýnt honum áhuga.
BREAKING NEWS: Em entrevista, Gabriel Jesus admite estar com tudo acertado com o Manchester City.
— FOX Sports Brasil (@FoxSports_br) July 28, 2016
Athugasemdir