banner
   fim 28. júlí 2016 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Auglýsing: Pogba segir fólki að hlusta ekki á fjölmiðla
Mynd: Getty Images
Yfirvofandi félagsskipti Paul Pogba til Manchester United hafa verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur.

Pogba hefur verið mjög dularfullur þessar vikur og leikið sér að því að gefa ýmsa hluti í skyn.

Nýjasta myndbandið þar sem Pogba stríðir knattspyrnuaðdáendum er úr smiðju Adidas.

Þar segir Pogba áhorfendum að hlusta ekki á fjölmiðla og koma afar skýrar tilvísanir fyrir í auglýsingunni sem hægt er að sjá hér fyrir neðan, en breski grime-rapparinn Stormzy kemur einnig fyrir.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner