Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 28. júlí 2016 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Usain Bolt sendir skilaboð til Zlatan
Mynd: Getty Images
Usain Bolt er mikill aðdáandi Manchester United og virðist vera afar ánægður með komu Zlatan Ibrahimovic til félagsins.

Bolt hefur oftar en einu sinni æft með Rauðu djöflunum og oft grínast með að ganga til liðs við félagið.

Bolt, sem er hraðasti maður sem uppi hefur verið, býður Zlatan velkominn og segir svo, í léttum hótunartón, ætla að fylgjast með honum.

Kveðjuna má sjá hér fyrir neðan og augljóst að það er yfirleitt stutt í húmorinn jamaíkíska hlaupakappanum.


Athugasemdir
banner
banner
banner