Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 29. júlí 2016 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Lingard kennir 'dab' í vandræðalegri auglýsingu
Mynd: Getty Images
Chevrolet, styrktaraðili Manchester United, gaf út nýja auglýsingu þar sem Jesse Lingard, leikmaður Man Utd, kennir tveimur liðsfélögum sínum hvernig á að gera 'dab' hreyfinguna vinsælu.

Cameron Borthwick-Jackson og Timothy Fosu-Mensah eru liðsfélagarnir sem fara í 'Dab Háskólann' svokallaða hjá Lingard.

Lingard er meðal þeirra leikmanna sem grípa stundum í 'dabið' til að fagna mörkum, en gott dæmi um annan sem gerir slíkt hið sama er Paul Pogba.

„Þeir eru með hreyfingarnar á vellinum í lagi, en eru þeir með dab hæfileikana sem þarf til að útskrifast úr #DabUniversity með #JesseLingard?" stendur í tísti frá bílaframleiðandum Chevrolet og hægt er að sjá myndbandið sem fylgir hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner