Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 30. júlí 2016 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lazio krækir í Wallace á 8 milljónir (Staðfest)
Wallace og Kolbeinn eigast hér við í frönsku deildinni.
Wallace og Kolbeinn eigast hér við í frönsku deildinni.
Mynd: Getty Images
Lazio er búið að tryggja sér þjónustu Wallace Fortuna dos Santos, sem er 21 árs brasilískur miðvörður.

Wallace á sjö leiki að baki fyrir U23 og U20 lið Brasilíu og hefur verið á láni hjá Monaco undanfarin tvö ár.

Wallace var ásamt Kolbeini Sigþórssyni í ekki-liði tímabilsins í frönsku deildinni en er þrátt fyrir það talinn afar hæfileikaríkur miðvörður.

Braga keypti Wallace frá Cruzeiro á 9.5 milljónir evra í júlí 2014 og skellti 40 milljón evra söluákvæði í samninginn hans, en á endanum var hann seldur til Lazio án þess að spila einn einasta leik fyrir portúgalska félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner