Eins og í fyrra ætlum við að líta aðeins til baka og sjá hvað er fólki efst í huga þegar hugsað er til knattspyrnuársins 2004. Við höfðum samband við valinkunna einstaklinga og báðum þá um að segja okkur hvað þeim þætti eftirminnilegast í knattspyrnunni 2004, bæði hér heima og erlendis. Hér að neðan má sjá afraksturinn.
Pistlahöfundur DV
Innlent:
Sigur FH-inga á Dunfermline í Evrópukeppninni var frábær úrslit sem fengu alls ekki þá athygli sem sanngjarnt hefði verið. Vissulega var keppnistímabilið rétt að byrja og Skotarnir fengu ekki að leika á sínum eigin heimavelli, en engu að síður var þetta mjög góður sigur. Íslensku liðin hafa ekki átt marga góða spretti í Evrópu síðustu árin og því miður héldu Hafnfirðingar ekki sínu striki í næstu umferð þar sem þeir voru kjöldregnir af þýsku 2.deildarliði.
Erlent:
Sigur Grikkja á Evrópumótinu er án nokkurs vafa eftirminnilegasti erlendi atburðurinn. Grikkland er liðið sem öllum er illa við, en allir vilja vera. Nánast engar stjörnur innanborðs, en aðdáunarverð barátta og samvinna hjá liðinu og magnaður varnarleikur. Gríska landsliðið er allt það sem íslenska landsliðið í knattspyrnu lætur sig dreyma um að verða. Enginn sem hefur klappað fyrir íslenska landsliðinu pakka í vörn á Laugardalsvelli gegn stjórþjóðum getur leyft sér þá hræsni að bölva Grikkjum og Otto Rehagel.
Markmannsþjálfari
Innlent:
Það frábæra starf sem unnið hefur verið hjá FH og allt sem þeir uppskáru á árinu. Eins það að Grindavík skildi kalla á hann Þorstein Bjarnason vinn minn annað árið í röð til að bjarga málum. Þá á sér varla hliðstæðu í nútímaknattspyrnu að A-landslið karla skuli ekki hafa markmannsþjálfara. Einnig vil ég nefna frábæra umgjörð hjá RUV vegna EM 2004.
Erlent:
Sigur Grikkja á EM 2004 með "þýsku lagi". Frammistaða hjá Árna Gauti í Noregi, hann var frábær, eins leikur hans með Manchester City á móti Tottenham í bikarnum. Eiður Smári og Heiðar Helguson eru frábærir leikmenn sem sýndu frábæra frammistöðu á árinu. Sigur Werder Bremen í þýsku deildinni og í bikar.
Blaðamaður á Morgunblaðinu
Innlent:
Sigurinn á Ítölum, 2-0.
Erlent:
Slakur árangur Real Madrid sem sýnir að það er ekki nóg að hrúga saman stjörnum til að vinna stóra titla.
Jón Ólafsson
Tónlistarmaður
Innlent:
Annars vegar að Þróttur skyldi tryggja sér sæti á meðal þeirra beztu á nýjan leik og hinsvegar sigurinn gegn Ítölum á Laugardalsvellinum hjá íslenska karlalandsliðinu.
Erlent:
Slæmt gengi Darlington í Englandi.
Þjálfari KR
Innlent:
Það er enginn spurning í mínum huga: Að ná öðru sæti með ÍBV og tryggja okkur þar með Evrópusæti og vera með í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn fram á síðustu stundu, þar sem okkur hafði verið spáð fallbaráttu eða jafnvel falli þá var þetta ennþá sætara. Og auðvitað síðan í haust að vera boðið að þjálfa lið sem ég hafði alltaf stefnt að að þjálfa og er mitt lið, KR, það var alveg frábært. Það toppaði fótboltaárið hjá mér og er mér efst í huga frá árinu 2004.
Erlent:
Það er nú kannski ekkert eitt atvik öðru fremur erlendis 2004 en verð þó að segja að sigurleikirnir hjá mínu liði í enska boltanum, Man Utd, gegn Liverpool og Arsenal á þessu ári (enda orðnir nokkuð margir) eru mér ofarlega í huga þegar horft er til ársins 2004.
Útvarpsmaður á X-inu 9,77
Innlent:
Þótt ég sé Haukamaður þá var gaman að sjá að íslenska dollan færi í Fjörðinn í fyrsta sinn, til hamingju FH.
Erlent:
Sem harður Arsenal áðdáandi þá var mjög sætt að sjá þá klára ensku deildina taplaust, tvímannalaust það stærsta í útlenskum boltafréttum á árinu 2004.
Jón Þorgrímur Stefánsson
Íslandsmeistari með FH
Innlent:
Eftirminnilegast í fótboltanum hér heima er náttúrulega Íslandsmeistaratitill okkar í FH. Einnig góður árangur í Evrópukeppni og að herbergisfélaginn (Gamli ,aka Heimir Guðjónsson) hafi verið valinn besti maður Íslandsmótsins.
Svo má ekki gleyma því að okkar frábæru stuðningsmenn, sem við höfum alltaf vitað að væru bestir, fengu það skjalfest "Bestu stuðningsmenn Íslands". Þannig að þetta ár var bara tær snilld fótboltalega séð og gleymist aldrei. Þetta var það jákvæða.
Síðan gerðist sá sorglegi atburður að við FH-ingar misstum okkar besta félagsmann sem við söknum allir sárt. Þórir Jónsson var hjarta FH og persónulegur vinur allra leikmanna/þjálfara og stjórnarmanna. Hann lifir áfram í hugum og hjörtum allra FH-inga.
Erlent:
Já já, Coventry (The only true skyblue) suckar ennþá helv.... djö.... heitasta helv...., allt annað féll í skuggann í erlenda boltanum.
Alþingismaður
Innlent: Athyglisverður sigur og um leið fyrsti Íslandsmeistaratitill FH-inga, en þeim tókst hið ótrúlega að enda fyrir ofan ÍBV í deildinni í sumar.
Erlent: Sigur Grikkja í Evrópukeppninni í sumar. Sú staðreynd ætti að gefa fleiri liðum en áður von um að geta sigrað í stórmótum í knattspyrnu.
Arnar Björnsson
Íþróttafréttamaður á Sýn
Innlent:
Sigur FH-inga á Íslandsmótinu í sumar er að mínum dómi það eftirminnilegasta á árinu 2004. Alltaf gaman þegar lið sem aldrei hefur unnið titilinn áður nær þessum áfanga. Sigur Íslendinga á Ítölum á Laugardalsvellinum kemur einnig upp í hugann.
Erlent:
Evrópumeistaratitill Grikkja í Portúgal og sigur Porto í Meistaradeildinni stendur uppúr í erlendum fótbolta. Þarna sannaðist best að það er hægt að ná árangri án þess að borga himinháar fjárhæðir fyrir fótboltamenn.
Íþróttadeild RÚV
Innlent:
Ég held að frammistaða FH-inga á Íslandsmótinu í sumar hljóti að standa upp úr. Þeir léku skemmtilegri knattspyrnu en sést hefur í lengri tíma og er vonandi vísir að því sem koma skal í deildinni. Þá verður einnig að minnast á vináttuleik Íslands og Ítalíu sem var frábær skemmtun þótt framhaldið hafi ekki verið glæsilegt.
Erlent:
Evrópumótið í Portúgal hlýtur þó að teljast viðburður ársins í knattspyrnunni. Ég mun að minnsta kosti aldrei gleyma því hvernig mér leið þegar Grikkir skoruðu á lokamínútu framlengingar í undanúrslitum á móti Tékkum. Þá var leikur Hollendinga og Tékka í riðlakeppninni svo góður að mér er til efs að boðið verði upp á slíka skemmtun á næstu árum.
Knattspyrnukona
Innlent:
Ég skemmti mér mjög vel a Ísland - Ítalia, það var frábær stemmning á vellinum. Það er gaman að hafa verið á vellinum þennan dag og mun seint gleymast.
Erlent:
Það var gaman að strákarnir í Malmö FF unnu sænsku deildina, öll borgin tók þátt í fagnaðarlátunum. Evrópukeppnin var mjög skemmtileg, þrátt fyrir að Tékkarnir hafi ekki unnið. Það voru margir frábærir leikir, t.d. Holland-Tékkland.
Þjálfari Vals
Innlent:
Sigur íslenska landsliðsins á Ítölum.
Erlent:
Sigur Grikkja á Evrópumóti landsliða.
Þjálfari Þróttar
Innlent:
Af ýmsum ástæðum er leikur Þróttar gegn Breiðablik á Kópavogsvelli, mér
eftirminnilegastur frá íslensku fótboltaári.
Erlent:
Af erlendri grundu ber sennilega hæst sigur Grikklands í Evrópakeppninni.
Fyrirliði ÍA
Innlent:
Ég vildi að ég gæti sagt að það tengist mér eða mínu liði en því miður var þetta ár vonbrigða hjá okkur skagamönnum en fyrsti íslandsmeistaratitill FH hlýtur að standa uppúr hér heima og að Heimir vinur minn Guðjónsson skuli loks hafa hampað titlinum orðinn háaldraður og hokin af reynslu.
Erlent:
Framganga Eiðs Smára með Chelsea er búinn að vera frábær á þessu ári, hann endaði tímabilið í vor sem fyrsti senter hjá Ranieri og hefur svo styrkt sig undir stjórn hins ofursvala Mourinho og mér sýnist að hann hampi stórum titli á nýju ári ef fram fer sem horfir. Einnig var það frekar óvænt að Porto skuli hafa unnið Meistaradeildina og Grikkir hafi hampað Evrópumeistaratitlinum.
Leikmaður Tottenham
Innlent:
Klárlega þegar FH vann íslandsmeistaratitilinn í sumar og það í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Erlent:
Þegar Dunfermline tapaði á móti FH í UEFA Cup á sínum eigin heimavelli.
Fyrrum leikmaður KR og ÍBV
Innlent:
Að hafa fengið tækifæri til að spila með Birki "langafa" Kristinssyni. Stundir sem seint gleymast.
Erlent:
Sigur Grikkja í EM, niðurlæging fyrir evrópska knattspyrnu.
Starfsmaður KSÍ
Innlent:
Landsleikurinn við Ítalíu var að sjálfsögðu það eftirminnilegasta á innlendum vettvangi. Sanngjarn tveggja marka sigur á stórliði eins og ítalska landsliðinu fyrir framan 20.000 áhorfendur á Laugardalsvelli er nokkuð sem ég efast um að við munum upplifa aftur á næstu áratugum.
Einnig var gaman að sjá lið FH hampa Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn. FH-ingar léku frábæra knattspyrnu og áttu titilinn fyllilega skilinn.
Erlent:
Á erlendum vettvangi myndi ég telja að sigur Grikkja í EM stæði upp úr. Þetta var eitthvað sem enginn bjóst við.
Markahrókur hjá Sýn
Innlent:
Íslandsmeistaratitill FH gnæfir yfir allt frá fótboltasumrinu. Samheldinn hópur leikmanna, þjálfara og stjórnar gerði það að verkum að liðið sýndi hugdirfsku og glæsileik í leik sínum. FH var eina liðið sem átti skilið að vinna mótið. Önnur lið ollu vonbrigðum að undanskildum ÍBV og Keflavík sem komu þægilega á óvart. KR liðið voru vonbrigði ársins og ÍA, Fylkir og Fram voru einnig langt frá sínu besta, sérstaklega Fram sem átti ekki skilið að halda sæti sínu.
Á persónulegum nótum þá var fæðing sonar míns mesta gleðistundin. Sorglegasta stundin var ótímabært fráfall vinar míns Þóris Jónssonar í maí síðastliðnum. Algerlega óskiljanlegt sem mun valda mér hugarangri um ókomin ár.
Árangur smærri liðanna í Meistaradeildinni, Porto og Mónakó, stendur upp úr. Þau gáfu stóru liðunum langt nef. Árangur Grikkja á Evrópumótinu vakti undrun mína. Liðið var vel skipulagt en spilaði hundleiðinlegan fótbolta. Annars olli Evrópumótið mér miklum vonbrigðum. Lélegir leikir lengst um og svokallaðar stjörnur voru arfaslakar. Vona að heimsmeistaramótið árið 2006 verði skemmtilegra.
Persónulega þótti mér brotthvarf Gerards Houllier frá Liverpool mestu
gleðitíðindi ársins í erlenda boltanum!
Leikmaður sænska liðsins Djurgarden
Innlent:
Þegar U21 landsliðið vann Svíþjóð 3-1 og Hannes setti skemmtilega þrennu, það var magnað.
Erlent:
Þegar Djurgarden vann sænska bikarinn.
Fyrrverandi landsliðsþjálfari
Innlent:
Það sem stendur upp úr er sigur FH-inga í Landsbankadeildinni. Gaman var að fylgjast með liðinu allt sumarið og sérstaklega fagna ég því að Heimir Guðjónson hafi náð að sýna leiðtogahæfileka sína og hampa öllum helstu verðlaunum sem knattspyrnumaður á Íslandi getur fengið. FH-inar áttu sigurinn skilinn og þessi titill mun alltaf vera í minnum hafðu vegna þess að þeir tileinkuðu Þóri Jónssyni, félaga og vini sem féll af slysförum frá snemma á þessu ári, þennan titil.
FH-ingar urðu einnig Íslandsmeistarar í 5.flokki. Í þeim flokki eru margir stórefnilegir leikmenn sem eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. FH- er að gera stórkostlega hluti innan sem utan vallar.
Erlent:
Evrópukeppnin í Portúgal bar þar hæst. Það óvænta gerðist að Grikkir sigruðu verðskuldað. Þetta ætti að ýta undir það að jafnvel íslendingar geta átt von á glaðningi í framtíðinni.
Eiður Smári var og verður okkar skærasta stjarna. Hann hefur skipað sér á pall þeirra bestu. Eiður hefur farið fyrir okkar mönnum bæði með landsliði og félagsliði. Það virðast margir hafa gleymt því að þetta er ekki sjálfgefið, en ef tekið er tillit til þess að Eiður slasaðist það illa fyrir nokkrum arum að færustu læknar töldu hann ekki geta spiað knattspyrnu aftur. Hann sýndi það og sannaði að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Sjónvarpsmaður
Innlent:
Svarthvítt sumar hjá mér. Bæði af því ég held með KR og fylgdist líka vel með FH vegna tengdaföður míns, sem er forfallinn. En sumarið var líka svarthvítt, að því leyti að KR ingar gátu á sínum bestu dögum sýnt betra spil og fallegri tilþrif en nokkurt annað lið.
En þegar þeir duttu sem mest niður (sem gerðist of oft) spiluðu þeir einsog slakasta liðið í deildinni. Semsagt, svart - hvítt, skin og skúrir.
Erlent:
Sigurleikur Liverpool á móti Olympiakos í desember. Hreint ótrúlegur leikur þar sem Liverpool liðið sýndi gamalkunnan karakter, sem því miður er alltof oft fjarstaddur á leikjum liðsins.
Leikmaður Leeds
Innlent:
Ítalíuleikurinn stendur upp úr hérna heima árið 2004. Það er leikur sem að gleymist seint þó svo að um vináttuleik hafi verið að ræða. Frábær upplifun og gaman að hafa tekið þátt í!
Erlent:
Erlendis er það sennilega óvænt úrslit í Meistaradeildinni þar sem enginn bjóst við Portó - Mónakó í úrslitaleiknum. Og náttúrulega það að Grikkir skulu hafa unnið Evrópukeppni landsliða í sumar.
Leikmaður Víkings
Innlent:
Frábær sigur íslenska landsliðsins á því ítalska fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll.
Erlent:
Sigur Grikkja á EM eða sigur Porto í Meistaradeildinni. Ég get ekki gert upp á milli þeirra. Bæði lið komu hrikalega á óvart.
Fyrirliði HK
Innlent:
Bikarævintýri okkar HK-inga og besti árangur okkar í deild frá upphafi, Jónsi vinur minn var meistari með FH. Á persónulegu nótunum er það sennilega ferðin til London sem ég og Hildur konan mín fórum með vinum okkar, ógleymanleg ferð.
Erlent:
Sigur CITY á united 4-1 í febrúar.
Íþróttafréttamaður á Sýn
Innlent:
Stórkostlegur árangur ÍBV í karla- og kvennaflokki í fótboltanum. Að þetta litla fjögur þúsund manna bæjarfélag skuli eiga knattspyrnulið í fremstu röð, og einnig í handbolta, er stærra afrek heldur en flestir átta sig á. Vestmannaeyjar eru frekar einangrað samfélag og krafturinn og dugnaðurinn í fólkinu þar er með ólíkindum en fyrir utan hefðbundinn rekstur leggst ferðakostnaður á félagið sem eru tugir milljóna á ári hverju. Karla- og kvennalið urðu í 2.sæti efstu deildar og kvennaliðið bikarmeistari.
Birkir Kristinsson stendur líka upp úr fyrir magnaða frammistöðu hjá ÍBV, hann er ótrúlegur íþróttamaður, er sannarlega "í takt við tímann" og með "allt á hreinu." Íslandsmeistaratitill FH inga er stærsti einstaki íþróttaviðburður ársins hér innanlands. Ég var einmitt á Akureyri að lýsa leik KA og FH þegar Fimleikafélagið tryggði sér titilinn og það var einstakt að verða vitni að sigurvímu Hafnfirðinga þegar Heimir Guðjónsson hóf titilinn á loft.
Persónulega stendur upp úr að fylgjast með börnunum mínum á knattspyrnuvellinum, bæði á Shellmótinu í Eyjum og Gullmóti Breiðabliks. Landsleikurinn við Ítalíu var magnaður og gaman að vera á troðfullum Laugardalsvelli. Stemmningin var ólýsanleg.
Þá fannst mér gaman að fara til Möltu með landsliðinu í haust þótt leikur liðsins hafi verið frekar slakur en í sjónvarpsmálum eru Maltverjar ljósárum á eftir flestum öðrum. Þá lenti ég á hinum fræga blaðamannafundi Zlatans Ibrahimovic á Hótel Nordica fyrir fyrir Svíaleikinn sem var mjög eftirminnilegt. Ekki má gleyma landsleiknum við Englendinga á City of Manchester Stadium og vonbrigðunum yfir úrslitunum.
Erlent:
Árangur Porto í Meistaradeildinni stendur upp úr í Evrópuboltanum og svo auðvitað sigur Grikkja á EM. Ótrúlegt gengi Arsenal var auðvitað einn af hápunktum ársins en ég varð auðvitað fyrir gríðarlegum vonbrigðum að Ipswich Town kæmist ekki upp í ensku úrvalsdeildina. Nú stendur það til bóta. Frammistaða Eiðs Smára Guðjohnsens með Chelsea var auðvitað frábær og óvíst að Íslendingar eignist annan eins afreksmann í þessari íþróttagrein í bráð.
Leikmaður Vals
Innlent:
Eftirminnilegast í íslenskum fótbolta er að sjálfsögðu þegar Elmar Dan Sigþórsson skoraði sigurmark KA gegn Fylki í Árbænum. Besta ,,fagn" ársins!
Erlent:
þegar Grikkir urðu Evrópumeistarar þrátt fyrir að ENGINN hafi haft nokkra trú á þeim áður en keppnin byrjaði.
Leikmaður með Grindavík
Innlent:
Það eftirminnilegasta í boltanum hér heima að mínu mati verður að teljast sigur okkar á Keflingingum í næstsíðustu umferð sem bjargaði okkur frá falli. Það sem gerði þennan sigur enn sætari var að við vorum með tvo fastamenn í banni og tæplega fimmtugan snilling (Þorstein Bjarnason) í markinu.
Erlent:
Það eftirminnilegasta í boltanum erlendis er án efa meistaratitill minna manna í Englandi. Ótrúlegur árangur Arsenalmanna að fara ósigraðir gegnum heilt tímabil og það er sko á kristaltæru að það met verður seint slegið.
Leikmaður ÍA og starfsmaður KSÍ
Innlent:
Mér finnst góður árangur FH eftirtektarverður og vonandi ná íslensk lið að fylgja honum eftir. Endurkoma Guðjóns Þórðarsonar mun eflaust lífga upp á knattspyrnuna næsta sumar. Þá fannst mér persónulega ánægjulegt að KSÍ fékk 411 þjálfara til sín á þjálfaranámskeið á árinu og það er met hjá okkur og í kringum 4 sinnum fleiri heldur en árið 2001. Aukin menntun þjálfara mun skila sér í betri þjálfun og leikmönnum í framtíðinni.
Það varð líka ákveðin bylting í aðstöðu með byggingu sparkvalla um allt land og það mun halda áfram næsta sumar og skila sér í fleiri iðkendum og meiri fótbolta yfir vetrartímann. Svo var virkilega gaman að taka þátt í því að slá áhorfendametið á Laugardalsvelli þegar Ísland vann Ítalíu í frábærum leik.
Erlent:
Erlendis stendur EM 2004 kannski upp úr, en þar stóðu Grikkir sig framar vonum sem sýnir okkur litlu þjóðunum að það er ýmislegt hægt og bilið á milli þeirra bestu og minni þjóðanna er að minnka.
Íþróttadeild RÚV
Þegar maður hefur verið í íþróttafréttum í mörg ár vilja nú tíðindin renna dálítið saman. En það er margs gleðilegs að minnast úr boltanum frá árinu 2004.
Innlent:
Mér finnast helstu sigurvegarar í boltanum hér heima eftirminnilegir. FH-ingar fyrir frábæra frammistöðu í karlaflokki, það er afar sjaldgæft og sérstakt að sjá nýtt nafn á Íslandsmeistarabikarnum núorðið. Hið sama má sannarlega segja um lið ÍBV í kvennaflokki. Þar var líka frábært lið og nýr meistari. En hinir sigurvegararnir tveir eru líka eftirminnilegir, einkum nú á þeim tímum þegar alltof margir í bransanum eyða meiri tíma í leikmannakaup en fagmennsku. Það sannast nefnilega oft að hollur er heimafenginn baggi og það er líklegra að heimamönnum rennið blóðið til skyldunnar. Íslandsmeistaralið Vals í kvennaflokki og bikarmeistaralið Keflavíkur í karlaflokki voru bæði að langmestu leyti byggð á heimamönnum. Bæði félög fengu þar vitnisburð um frábæra grunnvinnu og stórefnilega unga leikmenn sem skiluðu góðu verki.
Á erlendri grundu er mér tvennt efst í huga. Í fyrsta lagi glæsilegur sigur Grikkja á Evrópumóti karla. Þar varð enn sannað að góður árangur byggist á vel skipulögðu liði með vel þjálfuðum einstaklingum. Þeir einstaklingar þurfa þó ekki að vera heimsstjörnur með fullar hjólbörur af peningum. Otto Rehagel er kóngur þessa árs. Hitt er frábær frammistaða íslenska kvennalandsliðsins gegn Ólympíumeisturum Bandaríkjanna sem ég sá í Rochester í New York ríki í september. Kvennalandsliðið jafnaði þá að því er virtist tapaðan leik með 3 glæsimörkum á 6 mínútum. Að Ólympíumeistararnir skyldu skora sigurmark á lokasekúndunni var pínulítið ergilegt, en í raun tilviljun, en leikurinn var fágætt drama.
Af einstökum leikmönnum erlendis þykir mér tvennt merkilegt. Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen er nú orðinn heimsstjarna, það skref steig hann á þessu ári. Vonandi leiðir hann sitt lið til sigur í enska boltanum í vor. Hitt er að besti varnarmaður kvennalandsliðsins, Guðrún Gunnarsdóttir, varð bandarískur háskólameistari á dögunum. Það er afar merkilegur sigur og frammistaða sem ég býst við að fleiri hér læri að meta og skilja í framtíðinni.
Keflvíkingur
Inlent:
Það eftirminnilegast af innlendum vettvangi er bikarmeistaratitill Keflavíkur og að sjálfsögðu að hafa skorað í þeim leik og svo arfa slakt gengi KR í sumar miðað við mannskap.
Einnig var það frábær upplifun að fá að fara til S-Kóreu og æfa þar við topp aðstæður.
Erlent: það að Michael Owen skipti yfir í Real Madrid fyrir smáaura.
Að lokum vill Fótbolti.net þakka öllum þeim sem svöruðu kærlega fyrir.



