Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. ágúst 2016 12:37
Elvar Geir Magnússon
ÍBV ætlar ekki að tjá sig frekar um brotthvarf Bjarna
Bjarni er horfinn á braut.
Bjarni er horfinn á braut.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þær fréttir komu eins og þruma úr heiðskíru lofti fyrir flesta fótboltaáhugamenn um helgina þegar ÍBV tilkynnti að Bjarni Jóhannsson væri hættur störfum, viku eftir að Eyjamenn léku til úrslita í Borgunarbikarnum.

Ekki hefur verið opinberað hver ástæðan fyrir brotthvarfi Bjarna er en í yfirlýsingu segir að Bjarni hafi sjálfur óskað eftir starfslokum.

ÍBV ætlar ekki að tjá sig frekar um brotthvarf Bjarna.

„Þetta er bara hans mál. Það eru persónulegar ástæður og ekkert sem við komum til með að tjá okkur um. Þetta er eitthvað sem við áttum ekki von á en það kemur stundum eitthvað upp sem breytir hlutunum," segir Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV.

Ekki hefur náðst í Bjarna sjálfan vegna málsins.

Alfeð Elías Jóhannsson, sem var aðstoðarþjálfari Bjarna, tekur við þjálfun ÍBV ásamt Ian Jeffs „fyrst um sinn" eins og segir í fréttatilkynningunni. Mikill óstöðugleiki hefur verið í þjálfaramálum ÍBV undanfarin ár og breytingar tíðar.

Bjarni tók við ÍBV eftir síðasta leiktímabil, en hann þekkir gríðarlega vel til í Eyjum eftir að hafa þjálfað liðið frá 1997 til 1999. ÍBV tapaði fyrir Fylki í fallbaráttuslag í síðustu viku en Eyjaliðið er í tíunda sæti og mætir Víkingi Reykjavík í kvöld.

Leikir kvöldsins í Pepsi-deildinni
18:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
18:00 Fylkir-ÍA (Floridana völlurinn)
20:00 Þróttur R.-Valur (Þróttarvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner