Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. ágúst 2016 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Enski deildabikarinn: Watford og West Brom úr leik
Watford tapaði fyrir Gillingham.
Watford tapaði fyrir Gillingham.
Mynd: Getty Images
Berahino spilaði í 120 mínútur og klúðraði vítaspyrnu.
Berahino spilaði í 120 mínútur og klúðraði vítaspyrnu.
Mynd: Getty Images
Síðustu leikjum kvöldsins í enska deildabikarnum var að ljúka og eru Watford og West Bromwich Albion úr leik.

Watford tapaði á heimavelli fyrir Gillingham og West Brom tapaði fyrir Northampton í vítaspyrnukeppni.

Watford herjaði á mark Gillingham stærsta hluta leiksins en gestirnir náðu að jafna á 82. mínútu eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu tíu mínútum fyrr.

Bradley Dack, sem klúðraði spyrnunni, varð svo hetja gestanna þegar hann skoraði sigurmarkið í framlengingu.

Northampton jafnaði einnig á lokasprettinum gegn West Brom en hvorugu liði tókst að skora í framlengingu. Saido Berahino og James Morrison, sem voru báðir í byrjunarliðinu, klúðruðu fyrir West Brom í vítaspyrnukeppninni og er liðið því úr leik.



Watford 1 - 2 Gillingham
1-0 Odion Ighalo ('58 )
1-0 Bradley Dack ('72 , Misnotað víti)
1-1 Mark Byrne ('82 )
1-2 Bradley Dack ('102 )


Blackburn 4 - 3 Crewe
0-1 Billy Bingham ('8 )
0-2 Chris Dagnall ('39 )
1-2 Hope Akpan ('42 )
2-2 Scott Wharton ('69 )
3-2 Craig Conway ('88 )
3-3 Chris Dagnall ('90 )
4-3 Shane Duffy ('97 )


Derby County 1 - 1 Carlisle
1-0 Darren Bent ('56 )
1-1 Mike Jones ('90 )
14-13 í vítaspyrnukeppni

Northampton 2 - 2 West Brom
1-0 Alexander Diamond ('36 )
1-1 James McClean ('45 )
1-2 Gareth McAuley ('47 )
2-2 Alex Revell ('82 )
4-3 í vítaspyrnukeppni

Reading 2 - 2 MK Dons
0-1 Dean Bowditch ('34 , víti)
1-1 Harriott ('68 )
2-1 Harriott ('114)
2-2 Kabongo Tshimanga ('122)
4-2 í vítaspyrnukeppni

Scunthorpe Utd 1 - 2 Bristol City
0-1 Bobby Reid ('35 )
1-1 Josh Morris ('60 , víti)
1-2 Tammy Abraham ('97 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner