Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. ágúst 2016 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild kvenna: Tindastóll búið að vinna C-riðilinn
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Tindastóll 3 - 1 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
1-0 Hugrún Pálsdóttir ('17)
2-0 Kasey Wyer ('23)
3-0 Laufey Harpa Halldórsdóttir ('32)
3-1 Sara Atladóttir ('90)

Tindastóll fékk sameinað lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. í heimsókn í eina leik dagsins í C-riðli 1. deildar kvenna.

Hugrún Pálsdóttir, Kasey Wyer og Laufey Harpa Halldórsdóttir gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik og tryggðu Stólunum sigur í riðlinum.

Tindastóll á enn eftir að spila við Völsung, sem er með þrjú stig á botninum. Gestirnir að austan ljúka tímabilinu með 11 stig eftir 10 leiki.

Tindastóll er með 22 stig eftir 9 umferðir. Sindri, Hamrarnir og Einherji koma þar á eftir og ljúka riðlinum með 16 stig.

HK/Víkingur og ÍR eru í toppbaráttunni ásamt Ólafsvíkingum í A-riðli og þá er Grindavík búið að vinna B-riðil og Haukar öruggir í öðru sæti.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner