Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. ágúst 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Bilic staðfestir áhuga á Bony og Zaza
Simone Zaza.
Simone Zaza.
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, stjóri West Ham, hefur staðfest að hann hafi áhuga á að fá Wilfried Bony eða Simone Zaza til félagsins.

Andre Ayew, Andy Carroll og Diafra Sakho eru allir á meiðslalistanum og Bilic vill bæta við framherja áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Samvkæmt frétt Sky vill West Ham fá Bony á láni þar til í janúar en annar möguleiki er að Zaza komi frá Juventus.

„Við erum með tvo leikmenn sem við erum að reyna að semja við. Við erum með meiðsli og við erum fámennir," sagði Bilic.

Bilic staðfesti síðan áhuga á Bony og Zaza en síðarnefndi leikmaðurinn var líka á óskalista West Ham í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner