Martin Dahlin umboðsmaður Ragnar Sigurðssonar fullyrðir að íslenski landsliðsvarnarmaðurinn sé launahæsti leikmaður Fulham.
Þetta segir Dahlin á Instagram þar sem hann birtir mynd af sér og Ragnari við undirskriftina hjá Fulham í gær.
Þetta segir Dahlin á Instagram þar sem hann birtir mynd af sér og Ragnari við undirskriftina hjá Fulham í gær.
„Samningurinn gerir hann að hæst launaða leikmanni félagsins. Ragnar átti vel heppnuð ár hjá Krasnodar í Rússlandi en hlakkar núna til að eyða næstu árum í London og reyna að hjálpa Fulham að komast upp í úrvalsdeildina," segir Dahlin.
Ragnar sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann tæki á sig umtalsverða launalækkun með skiptunum frá Krasnodar til Fulham.
Athugasemdir