Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. ágúst 2016 19:00
Gunnar Karl Haraldsson
FC Sion vill fá Balotelli á láni
Mario Balotelli.
Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli, leikmaður Liverpool er orðaður við FC Sion eftir að framkvæmdarstjóri félagsins staðfesti áhuga á leikmanninum.

Balotelli hefur æft einn hjá Liverpool eftir að honum var tjáð að hann sé ekki í framtíðarplönum Jurgen Klopp stjóra Liverpool. Balotelli var á láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð og hefur einnig verið orðaður við Chievo og Sassulo, en þau félagsskipti hafa ekki gengið í gegn.

„Ég get staðfest að við erum í viðræðum um að fá Balotelli á láni, en ég get ekki sagt á þessari stundu hvort samningar gangi í gegn eða ekki", er haft eftir stjórnarformanni FC Sion.

FC Sion endaði í 6.sæti í Svissnensku úrvaldsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner