„Ég var virkilega ánægður með að halda hreinum, það er eins og hjá fleirum, það er pizza þá. Þetta er mikill léttir," sagði Eiður Benedikt Eiríksson þjálfari Fylkis í Pepsi deild kvenna eftir sigur hans kvenna gegn ÍA uppá Skaga 0-1 í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 1 Fylkir
„Mótiveringin í dag, ég sagði í raun ekkert rosalega mikið en við erum búin að lenda í hverju áfallinu á fætur öðru, ég ætla kannski að ræða það neitt mikið meira en við erum búin að missa frá því í 3.umferð 10 leikmenn og einn komið í staðin," sagði Eiður varðandi mótiveringuna fyrir þennan leik.
„Við þurfum þrjú stig í viðbót og þau koma í næsta leik."
Athugasemdir