Sunderland hefur fengið hægri bakvörðinn Javier Manquillo í sínar raðir frá Atletico Madrid.
Manquillo kemur á láni út tímabilið en Sunderland á forkaupsrétt á honum næsta sumar.
Manquillo kemur á láni út tímabilið en Sunderland á forkaupsrétt á honum næsta sumar.
Hinn 22 ára gamli Manquillo var í láni hjá Liverpool á þarsíðasta tímabili.
Á síðasta tímabili var Manquillo hins vegar á láni hjá Marseille í Frakklandi.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem Sunderland fær síðan David Moyes tók við liðinu af Sam Allardyce í sumar.
Athugasemdir