Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. ágúst 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Southampton að kaupa leikmann á metfé
Mynd: Getty Images
Lille hefur samþykkt tilboð frá Southampton í framherjann Sofiane Boufal en Sky Sports greinir frá þessu.

Kaupverðið hljóðar upp á 21 milljón punda en það gerir Boufal að dýrasta leikmanni í sögu Southampton.

Fyrra metið átti Dani Osvaldo en Southampton borgaði 15 milljónir punda þegar hann kom frá Roma árið 2013.

Hinn 22 ára gamli Boufal er frá Marokkó en hann getur spilað bæði á kantinum og sem fremsti maður. Boufal skoraði ellefu mörk á síðasta tímabili.

Líklegt er að Jay Rodriguez fari frá Southampton til WBA á láni um leið og Boufal skrifar undir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner