Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 25. ágúst 2016 14:00
Elvar Geir Magnússon
Ronald Koeaman: Hef aldrei haft áhuga á Hart
Hart er vinsæll meðal stuðningsmanna Manchester City.
Hart er vinsæll meðal stuðningsmanna Manchester City.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Everton, segist aldrei hafa haft áhuga á Joe Hart, markverði Manchester City og enska landsliðsins.

Orðrómur hefur verið uppi um að Everton vildi fá Hart en ekkert var til í þeim kjaftasögum.

Nei var svarið þegar Koeman var spurður að því á fréttamannafundi hvort hann vildi fá Hart. Einfalt og gott.

Hart hefur fengið þau skilaboð að honum sé frjálst að yfirgefa City en Pep Guardiola er að ganga frá kaupum á markverðinum Claudio Bravo.

Hart var með fyrirliðabandið gegn Steaua Búkarest í Meistaradeildinni í gær en það var líklega hans síðasti leikur fyrir Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner