Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. ágúst 2016 14:07
Magnús Már Einarsson
Claudio Bravo til Manchester City (Staðfest)
Mynd sem Manchester City birti á Twitter nú rétt í þessu.
Mynd sem Manchester City birti á Twitter nú rétt í þessu.
Mynd: Twitter
Manchester City hefur keypt markvörðinn Claudio Bravo frá Barcelona en þetta var staðfest nú rétt í þessu. Talið er að kaupverðið sé í kringum 17 milljónir punda.

Hinn 33 ára gamli Bravo skrifaði undir fjögurra ára samning við Manchester City.

Bravo kom til Barcelona eftir að hafa slegið í gegn með landsliði Síle á HM 2014. Á tveimur árum hjá Barcelona vann hann átta titla.

Barcelona keypti Jasper Cillessen frá Ajax í morgun en hann á að fylla skarð Bravo.

Koma Bravo til Manchester City þýðir hins vegar að Joe Hart er væntanlega á förum frá enska félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner