Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. ágúst 2016 10:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Maradona: Messi sagðist vera hættur til að losna við gagnrýni
VIð fáum að öllum líkindum að sjá Messi aftur í þessari treyju
VIð fáum að öllum líkindum að sjá Messi aftur í þessari treyju
Mynd: Getty Images
Argentínska goðsögnin, Diego Maradona segir Lionel Messi hafa þóst hætta með landsliðinu til að hjálpa fólki við að gleyma að Argentína tapaði sínum þriðja úrslitaleik í röð á stórmóti.

Messi sagðist vera hættur að leika með landsliðinu, strax eftir tapið gegn Síle í Copa America en þar á undan tapaði liðið úrslitaleik HM, sem og úrslitaleik Copa America, árið á undan.

Hann spjallði svo við Edgardo Bauza, nýjan þjálfara landsliðsins og náði hann að sannfæra Messi um að snúa aftur með landsliðinu.

„Ég held Messi hafi þóst hætta til að láta okkur gleyma að þeir töpuðu þrem úrslitaleikjum í röð," sagði Maradona.

„Það var svolítið furðulegt að hann var hættur og svo byrjaður aftur, nokkrum vikum síðar."
Athugasemdir
banner
banner