Heimild: Vísir.is
Bayern München 6 - 0 Werder Bremen
1-0 Xabi Alonso ('9 )
2-0 Robert Lewandowski ('13 )
3-0 Robert Lewandowski ('46 )
4-0 Philipp Lahm ('66 )
5-0 Franck Ribery ('73 )
6-0 Robert Lewandowski ('77 , víti)
1-0 Xabi Alonso ('9 )
2-0 Robert Lewandowski ('13 )
3-0 Robert Lewandowski ('46 )
4-0 Philipp Lahm ('66 )
5-0 Franck Ribery ('73 )
6-0 Robert Lewandowski ('77 , víti)
Aron Jóhansson og félagar hans hjá Werder Bremen voru rassskelltir í fyrsta leik tímabilsins í þýsku Bundesligunni í kvöld.
Þeir heimsóttu meistara Bayern München og voru kjöldregnir á Allianz Arena í München. Lokatölur í leiknum urðu 6-0 fyrir þýsku risana.
Pólski framherjinn Robert Lewandowski hóf tímabilið á því að skora þrennu og Xabi Alonso, Philipp Lahm og Franck Ribery komust einnig á blað í leiknum í kvöld.
Aron Jóhannsson var í byrjunarliði Werder Bremen og hann var tekinn af velli á 64. mínútu þegar staðan var 3-0. Það hjálpaði ekki mikið til fyrir Bremen þar sem heimamenn gengu á lagið og bættu við þremur mörkum til viðbótar og unnu eins og áður segir mjög svo þægilegan 6-0 sigur.
Leikurinn var sýndur í beinni á Stöð 2 Sport og Vísir.is hefur nú birt myndband af mörkunum úr leiknum.
Smelltu hér til þess að sjá mörkin á vef Vísis.
Athugasemdir