Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. ágúst 2016 18:25
Jóhann Ingi Hafþórsson
England: Rashford tryggði United sigur í uppbótartíma
Marcus Rashford var hetja í dag.
Marcus Rashford var hetja í dag.
Mynd: Getty Images
Hull City 0 - 1 Manchester United
0-1 Marcus Rashford ('90)

Hull City og Manchester United mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Fyrir leikinn voru liðin bæði með sex stig eftir fyrstu tvo leikina. Allt útlit var fyrir að liðin myndu vera áfram jöfn af stigum eftir leikinn því staðan var ennþá markalaus þegar komið var í uppbótartíma.

Þá skoraði varamaðurinn Marcus Rashford eftir gríðarlega góðan undirbúning frá Wayne Rooney og grátlegt tap hjá Hull staðreynd.

United er hins vegar ennþá með fullt hús stiga og fer Jose Mourinho vægast sagt vel af stað í deildinni með United.
Athugasemdir
banner
banner
banner