Duwayne Kerr, markvörður Stjörnunnar, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en hann er á leiðinni til Chennaiyn í Indlandi.
Marco Materazzi, fyrrum varnarmaður Inter og ítalska landsliðsins, er þjálfari Chennaiyn en hann var staddur á Íslandi á dögunum til að semja við Kerr.
John Arne Riise samdi við Chennaiyn í gær en indverska ofurdeildin hefst eftir nokkrar vikur og stendur yfir í tæpa þrjá mánuði.
Fleiri félög í Indlandi vildu fá Kerr í sínar raðir en hann endaði á að semja við Chennaiyn.
Athugasemdir