Kasper Schmeichel, markmaður Leicester City er á leiðinni í aðgerð eftir helgi en hann fór meiddur af veli í sigri liðsins á Swansea í dag.
Talið er að kviðslit sé að angra Schmeichel og hefur það gert það í einhverjar vikur.
Claudio Ranieri, þjálfari Leicester hefur staðfest að Schmeichel fer í aðgerð á mánudaginn en bætir við að markmaðurinn missir líklegast ekki af leik.
„Hann er á leiðinni í aðgerð en þetta tekur ekki nema 4-5 daga að jafna sig svo hann ætti að vera tilbúinn í næsta leik," sagði Ranieri.
Athugasemdir