lau 27. ágúst 2016 22:09
Jóhann Ingi Hafþórsson
Spánn: Atletico gerði jafntefli við nýliðana
Fernando Torres tókst ekki að skora, frekar en öðrum.
Fernando Torres tókst ekki að skora, frekar en öðrum.
Mynd: Getty Images
Leganes 0 - 0 Atletico Madrid

Atletico Madrid gerði í kvöld markalaust jafntefli við Leganes, nýliða spænsku úrvalsdeildarinnar.

Diego Godin skoraði í seinni hálfleik en hann var dæmdur rangstæður í leik sem hefur eflaust pirrað Diego Simeoni ansi mikið.

Atletico hefur illa af stað í deildinni og eru tvö stig úr fyrstu tveim leikjunum ekki það sem liðið ætlaði sér.

Leganes hefur hins vegar komið á óvart og er liðið með fjögur stig eftir þessa tvo fyrstu leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner