Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. ágúst 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Stuðningsmaður Everton veiktist á Goodison Park og lést síðan
Stuðningsmenn Everton
Stuðningsmenn Everton
Mynd: Getty Images
Everton hefur staðfest að stuðningsmaður liðsins lést eftir að hafa veikst í seinni hálfleik í leik liðsins gegn Stoke í dag.

Maðurinn sem lést var 51 árs en hann þurfti að yfirgefa Goodison Park, heimavöll Everton í seinni hálfleik og fór hann þaðan á spítala þar sem hann lést.

„Það þykir okkur ansi leitt að 51 árs gamall stuðningsmaður veiktist í leik liðsins gegn Stoke í dag og lést hann á spítala. Hugur okkar er hjá fjölskyldu mannsins," stóð í yfirlýsingu frá Everton.

Everton vann leikinn 1-0 með sjálfsmarki frá Shay Given.
Athugasemdir
banner
banner
banner